Nokkrar pælingar...

 

Ég hef soldið gaman að því að spá í orðum og merkingum þeirra. Í umræðunni í þjóðfélaginu sem hefur verið undanfarið þá hef ég verið að velta fyrir mér eftirfarandi orðum og hvað þau standa fyrir:

Feministi. Í mínum huga er feministi einhver sem vill að konur séu jafnar körlum í leik og starfi og ber hagsmun kvenna fyrir brjósti sér. Feministi þarf samt ekki að vera jafnréttissinni. Hann vill bara að konur séu jafnar körlum sbr. FEMINisti

Jafnréttissinni. Það er sá sem vill jafnrétti fyrir alla. Konur, karla, fatlaða, útlendinga og svo mætti lengi telja. Því hljóta allir jafnréttissinnar að vera feministar. Eða vilja jafnréttissinnar bara jafnrétti fyrir karla, fatlaða útlendinga osfrv.  en ekki konur?

Karlisti. Ekki er til orð yfir einhvern sem vill jafnrétti fyrir karla. Svo við skulum kalla það karlista. Sá vill jafnrétti fyrir karla í leik og starfi og ber hagsmuni karla fyrir brjósti sér. Karlisti þar ekki að vera jafnréttissinni.

Svo eru tveir hópar í viðbót.

Það eru konurnar sem fara fram undir merkjum feminista og eru áberandi í þjóðfélagsumræðunni og gera það að verkum að fólk segir feminsti svona svipað og það segir nasisti. Það fær óbragð í munninn og skekkir á sér andlitið. Feminsti, það er slæmt. Þessar konur geta bara ekki borið hag kvenna fyrir brjósti. Það getur ekki verið gott fyrir konur að það sé slæmt að vera FEMINisti.  Það eru konurnar sem koma með fáránlegar hugmyndir sem gera lítið úr málstaðnum eins og það sem hefur verið í umræðunni undanfarna daga. Hvítvoðungar megi ekki vera í bleiku og bláu og fleiri svona fáránleg mál. Hafa þessar konur í alvörunni ekkert að gera? Ég á t.d. strák. Hann er oftast í bláu. Hann á hins vegar rauð föt og appelsínugul föt sem fara honum vel og meirað segja einn bleikröndóttann bol. Þegar hann fæddist var ég með föt sem hann fór strax í. Þau voru blá... só sú mí...! Ætliði kannski að segja mér að þessar konur banni dætrum sínum að vera í bleiku ef þær vilja það, því það sé niðrandi að skipa þeim á bása og setja þær í bleikt??

Svo eru það karlarnir sem úthrópa allar konur sem segjast vera feministar og bilast ef þær tjá sig á opinberum vettvangi eins og t.d. blogg. Í alvöru strákar. Ef þessar konur fara svona í taugarnar á ykkur, hvað eru þið þá að lesa bloggin þeirra? Þessi hópur t.d. trylltist yfir því að konur fóru að tala um að það væri niðrandi fyrir karla þessi nýjung í Hagkaupum. Þær voru bara að ræða þetta í bróðerni og svo komu þessir blessuðu karlar og fóru á hliðina yfir því að þær væru að æsa sig yfir þessu og um leið snérist umræðan og varð leiðinleg og fólk fór að ausa svívirðingum og ég veit ekki hvað og hvað... æji dæs og úff... Mitt ráð er þetta, stelpur, látið sem þið heyrið ekki í þeim. Ignorið komment frá þeim og látið sem þið sjáið þá ekki. Þeir eru ekki þess virði að láta blóðið fara á flakk yfir þeim.

Þá ætla ég að koma inn á þetta Hagkaups mál. Ég lít á mig sem jafnréttissinna. Þess vegna er ég feministi og karlisti J Mér finnst þetta uppátæki hjá Hagkaupum niðrandi fyrir karlmenn. Í alvöru strákar, ef þið pælið aðeins í þessu. Jú þetta er svaka kúl og fyndin hugmynd. Mér þætti fínt að hlamma mér niður og horfa á enska og spila playstation, ég skora bara á ykkur í mortal kombat ;) En ef þið hugsið aðeins lengra en það. Þarna er verið að setja upp herbergi til að „geyma" karlmenn á meðan konan verslar. Barnaherbergið skil ég. Ef ég er ein heima með strákinn minn, þá verð ég að taka hann með í búðina (annars reyni ég nú yfirleitt að sleppa því) þá er fínt að hann geti verið í barnaherbergi, honum finnst EKKI gaman að versla. Er með þessu pabbaherbergi verið að ýja að því að karlmenn séu svo mikil börn að þeir geti ekki verið heima á meðan konan verslar? Mér finnst ekkert skemmtilegt að versla í matvöruverslun. Mér finnst gaman að elda, og því er nauðsynlegt að versla. Ég líkt og aðrar mannverur funkera frekar illa ef ég fæ ekkert að borða og því eru slíkar verslunarferðir nauðsynlegar.  Ég hins vegar fer yfirleitt ein. Eða maðurinn minn fer...Einn. Ég get alveg borið pokana mína út í bíl og ég kann að keyra. Þannig að ég er fullfær um að fara útí búð sjálf :)

Jæja nóg um þetta :D

Þá að öðru, þó þessu tengt. Það er að segja, merkingu orða. Orð eru aldrei verri en merkingin sem lagt er í þau. 10 litlir negrastrákar. Í vísunni er ekki verið að tala niðrandi um litað fólk. Þetta er barn síns tíma. Fólk getur hins vegar kosið að leggja neikvæða merkingu í orðið negri. Það er þeirra völ. Sem dæmi um þetta þá vill litað fólk í USA meina það að það (litað fólk) megi kalla hvort annað „nigga" en ef hvítur maður segir „nigga" þá er það allt í einu orðið niðrandi? Hmmm. Þetta er eitthvað skrýtið. Ég vil nú gjarnan taka það fram að ég er sennilega síðust á listanum yfir þá sem hafa einhverja rasiska tendensa. Ég á vini af öllum þjóðernum og litum. Hef búið á Spáni og Danmörku svo eitthvað sé nefnt og finnst litróf manneskjunnar gera lífið skemmtilegra. Það er bara þetta með orðin...

Ég var t.d. að hlusta á Stóru Barnaplötuna með syni mínum í bílnum í dag. Þar er lag með Ómari Ragnarssyni sem er mjög fyndið. Þar eru stelpa og strákur að tala saman. Hún er að drullumalla og hann hlær að henni.  Textinn er einhvern veginn svona:

Stelpan segir: „É‘r að baka, bak‘í form. Í nokkrar beyglaðar dollur og hræri með (einhverju sem ég skil ekki). Hér ég baka, mitt brauð og syng. Ég sæki deigið mitt í dálítin moldarbing. Ég baka tertu með brúnan koll. Og þess vegna sit ég við svolítin drullupoll. Í honum heilmikið drullumall hræri ég fyrir minn kall. Þú mátt sjá en farðu svo frá því ég er að baka.

É‘r að elda, elda mat. Og ég elda í pott sem er eldgamalt vaskafat. Ég hræri með spýtu minn spónarmat. En það er frat að það er á fatinu soldið gat. En ég elda fyrir því, ég set stöppu í pottinn og stein set ég gatið í. Og seinna er ég eignast mann þá elda ég svona fyrir hann. Þú mátt sjá en farðu svo frá því ég er að elda."

Strákurinn segir þá „Ertað baka. Ahaha. Þetta finnst mér nú alveg fáránleg vitleysa. Er það nú kaka. Ahahaha. Og er það nú pottur og er það nú eldamaskína."

Stelpan svarar: „En ég elda fyrir því. Ég set stöppu í pottinn og stein set ég gatið í. Og seinna er ég eignast mann þá elda ég svona fyrir hann. Þú mátt sjá en farðu svo frá því ég er að elda."

Eigum við ekki öll að fara á hliðina yfir því að þetta lag sé að setja börn á bása og sé niðrandi fyrir konur? :) Bara svona smá pæling.

En nú er ég búin að blaðra nóg. Ég bara varð að koma þessu frá mér hehe :)


Afhverju er þessi frétt ekki í blöðunum á Íslandi???

Hér er mjög merkileg frétt um þetta mjög svo furðulega mál.

http://www.dailymail.co.uk/pages/live/articles/news/news.html?in_article_id=488654&in_page_id=1770

 Mér finnst nú frekar að það ætti að þýða svona fréttir heldur en að setja inn "fréttir" eins og þessa um hann Magna og Hveragerði...en það er nú bara mín skoðun Halo


mbl.is Kate tjáir sig um söknuð sinn eftir Madeleine
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstofnanir...!

Alveg er ég rasandi á þessum blessuðu ríkisstofnunum! Þannig er að þegar ég og maðurinn minn skildum á síðasta ári þá þurfti að sjálfsögðu að ganga frá allskonar umgengnis samningum og ég veit ekki hvað og hvað. Í janúar þegar þetta var allt saman frá gengið fór ég og sótti um meðlag hjá TR umboðinu á Selfossi. Svo líður og bíður og nú er Júlí og ekkert meðlag hef ég fengið. Ég fór að spyrjast fyrir hvað væri nú eiginlega í gangi. Þá finnst umsóknin mín, stimpluð í Mars... Á hverju stoppar þetta þá?? Jú þetta virðist stoppa á því að enginn SAMNINGUR hafi verið gerður um meðlagsgreiðslur.SAMNINGUR!!!! Erum við að grínast????!!!! Og hvað gæti ég gert í því að þennan samning vantaði, spurði ég? Jú, ég gat fengið þartil gerðan samning óútfylltan og farið og fengið undirskrift míns fyrrverandi í votta viðurvist. Jahá! Hvað ef við töluðumst ekki við? Hvað ef illindin sem voru í gangi í upphafi væru ekki yfirstaðin??!! Eruð þið að reyna að segja mér að íslenskar konur þurfi að eltast við barnsfeður sína til að fá þá til að skrifa undir samning um meðlag????!!!! og hvað ef hann segði bara nei????!!! Fengi ég þá bara ekki krónu??!! Það gerist varla mikið fáránlegra en þetta!! En ég er sko ekki búin! Onei! Jú, það vill svo til að ég er svo heppin að við tölumst við, meirað segja á frekar vinalegum nótum, enda er það í allra hag að það geti verið þannig. Þegar ég var svo loksins búin að fá þetta útfyllt í votta viðurvist með tilhöfn og öllu tilheyrandi þrammaði ég með þetta blessaða plagg uppá sýsló til að klára dæmið. En neeeii það er ekki nóg. Það þarf að samþykkja samninginn. Og hver gerir það, gæti einhver spurt?  Jú það ku vera fulltrúi fjölskyldusviðs hjá sýslumanninum á Selfossi. Það vill bara svo til að sú kona er í sumarfríi akkúrat núna. Er ekki einhver að leysa hana af í sumarfríinu?? Onei takk fyrir takk. Ekki sála.  En sýslumaðurinn sjálfur?? Hann hlítur nú að geta samþykkt þetta merka plagg? Jú kannski, en hann er bara í fríi líka. Jahá. Þið segið nokkuð. Þannig að ég verð bara að gjöra svo vel og bíða þangað til fólki hentar að vera ekki í fríi. Þá gæti einhver spurt, en hvernig stendur á að svona gerist?? Ja, ég spyr nú bara að því líka. Ég spurði vinalegu konuna hjá TR á Selfossi hvort að þær settu ekkert spurningamerki við þá staðreynd að þarna væri búið að liggja hjá þeim umsókn um meðlag síðan í janúar, stimplað í mars og engin samningur? Nei, þá er bara ekkert eftirlit með því! Ég er svo algjörlega rasandi og yfirgengilega hneyksluð á svona vinnubrögðum að ég bara á ekki til eitt aukatekið orð! En hvað getur maður gert annað en að bíta saman og bíða eftir að kónginum og prestinum detti í hug að mæta á svæðið úr sumarfríi í vinnunna sína, sem þau sinna á milli hálf tíu og hálf þrjú á daginn!

Pirr pirr

Vá..eitt orð gerði það af verkum að ég las fréttina með endalausum pirringi... JÓRVÍKURSKÍRI! Ertað grínast? Afhverju ekki þá að þýða Rotherham,Hull eða Ulley ?? Þetta er svipað og ef að það væri frétt í Englandi um eitthvað sem gerðist í Reykjavík og hún yrði um Smokebay!


mbl.is Bretar yfirgefa heimili sín vegna flóðahættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Madeleine

Ég fékk tölvupóst sendan í dag.. Ég ákvað að pósta hann hér svo allir geti séð hann frekar en að senda hann áfram. Endilega copy / paste-ið hann og sendið á alla sem þið þekkið:

Please read this message and pass it on! !!!!!!!!

As you are aware my niece, Madeleine, is still missing and I am asking everyone I know to send this as a chain letter i.e. you send it to everyone you know and ask them to do the same, as the story is only being covered in Britain, Eire and Portugal. We don't believe that she is in Portugal
anymore and need to get her picture and the story across Europe as quickly as possible. Suggestions are welcome.

Phil McCann
madeleine


Afhverju bara Reykjavík?

Ég hef afskaplega lítið álit á svona keppnum, en það er svosem bara mín skoðun og ekki það sem ég ætlaði að ræða hér... Alveg finnst mér dæmigert fyrir þjóðfélagið sem við búum í í dag að aðeins Ungfrú Reykjavík skuli sýnd í sjónvarpinu. Hvers vegna er þessari keppni gert hærra undir höfði en hinum keppnunum? Þar að auki fara fleiri stúlkur úr Ungfrú Reykjavík í Ungfrú Ísland en úr hinum keppnunum (ef ég hef skilið þetta rétt). Eru svona miklu betri og fallegri stelpur í Reykjavík heldur en annars staðar á landinu? Er verið að segja það? Þetta er skólabókardæmi um miðstýringuna sem á sér stað úr Reykjavík þar sem gert er lítið úr þeim sem voga sér að búa í öðrum landshlutum en á Suð-Vestur horninu! Skömm er að þessu!


mbl.is Fanney Lára valin ungfrú Reykjavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja...

Nú á að reyna þetta blog stand einu sinni enn... Ég lofa engum reglulegum færslum og ætla hér að henda því inn sem mér liggur á hjarta hverju sinni auk þess sem ég gæti mögulega látið fylgja athugasemdir á fréttum sem mér finnast áhuga/óáhugaverðar Smile


Um bloggið

Ásta Hrönn - Forskrúfuð og full kvenhroka

Höfundur

Ásta Hrönn
Ásta Hrönn
Höfundur er rúmlega tvítug, allra landshorna kvikindi en hefur átt búsetu á Selfossi undanfarin 3 ár. Einstaklega forskrúfuð og full kvenhroka með eindæmum.

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • madeleine

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband